Skilaði lokaverkefninu mínu í gær.
Sem er gott.
Fæ það reyndar til baka fljótlega og þarf þá að lagfæra. Það er allt í lagi.
Fékk yndislegt símtal í gær:
B: Hæ, ertu laus 24-27 apríl?
H: Já, örugglega. Akkuru?
B: Má bjóða þér að koma með til Frankfurt?

Ég er semsagt að fara í helgarferð til Frankfurt með Birki mínum og tengdó í lok apríl. Ég hlakka voða mikið til og verður mjög gott að komast aðeins í burtu.
Yndislegt að eiga svona góðan mann!
Eitt enn, hvað varð um sumarið? Ég ákvað í gær að það væri komið sumar í Reykjavík, en svo var allt á kafi í snjó í morgun! Og algengustu auglýsingarnar í útvarpinu frá dekkjaverkstæðum sem vilja aðstoða fólk við að setja bíla á sumardekk. Fyndið.
Um helgina ætla ég að kíkja út á lífið. Einhver með??